Terms of service

Skilmálar

Velkomin(n) á síðuna okkar, kæri viðskiptavinur. Gaman að sjá þig.


Hérna geturðu lesið skilmálana okkar ef þú ert í stuði og vilt lært meira um þau viðmið sem við vinnum eftir. Eigandi Trúpí er Aron Can, sem rekur vefverslunina og ábyrgist vörumerkið.

Skil eða skipti 

Það er ekkert mál að skipta um stærð eða skila vöru og fá endurgreitt ef varan passar ekki. Það eina sem þú þarft að gera er að fara niður í Gorilla Vöruhús (Vatnagarðar 22, 104 Reykjavík, S: 556-2036) og færð þá endurgreitt fyrir kaupin. Ef þig langar í aðra stærð geturðu svo pantað hana á netinu. Þú getur einnig pantað nýja stærð áður en þú skilar vörunni.


ATH: Mikilvægt er að skila vörunni (ónotaðri) í pokanum sem varan kom í þannig að hún sé ennþá merkt með nafni og pöntunarnúmeri

Persónuvernd og vefkökur

Fyrir okkur er öryggi í fyrirrúmi og leggjum við mikið upp úr því að tryggja okkar viðskiptavinum að persónuupplýsingar séu meðhöndlaðar með þeim hætti. Hægt er að nálgast persónuverndarstefnu okkar hérna, þar sem einnig er hægt að nálgast vefkökustefnu okkar. Vefkökurnar eru litlar textaskrár sem vefsvæðið setur inn á tölvuna þína til þess að Trúpí þekki þig aftur og viðskiptin verði straumlínulöguð.

 

Sendar pantanir

Trúpí tekur sér 2-3 virka daga þar til vöru er komið til flutningsaðila sem flytur hana á umbeðinn afhendingarstað. 

Dropp er dreifingaraðili Trúpí og sér um sendingu á keyptum vörum til viðskiptavina. Um afhendingu vörunnar gilda því afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp. Eingöngu er hægt að fá vörur Trúpí sendar innan Íslands. Trúpí áskilur sér rétt til að breyta skilmálum er varða verð, afhendingar- og sendingarmáta, án fyrirvara.

 

Tilkynningar

Trúpí hefur leyfi til að senda þér tilkynningar með rafrænum hætti á það netfang og eða símanúmer sem notandi hefur gefið upp í tengslum við þjónustuna. Trúpí reynir að tryggja að allar tilkynningar berist notanda fljótt og örugglega en ábyrgist þó ekki að tilkynningar komist rétt og tímanlega til skila. Trúpí ber enga ábyrgð á og er ekki skaðabótaskylt vegna þeirra tilkynninga sem Trúpí kann að senda þér, hvorki vegna innihalds né vegna þess að tilkynningar berast ekki á réttum tíma. Með því að samþykkja þessa skilmála veitir þú Trúpí leyfi að senda þér tölvupóst í markaðslegum tilgangi (það er alltaf hægt að afskrá sig af póstlistum Trúpí).

 

Öryggisbrestur?

Ef að þú verður var eða vör við óeðlilega notkun eða greiðslur af greiðslukortinu þínu á Trúpí sem þú telur þig ekki hafa framkvæmt, týndir símanum eða grunar að óviðkomandi aðili hafi vitneskju um aðgangsupplýsingar að Trúpí aðganginum þínum, er það á þinni ábyrgð að láta okkur vita eða loka án tafar fyrir aðganginn og/eða kortið. Trúpí áskilur sér þann rétt að loka fyrir aðganginn þinn eða aðra notenda ef grunur er um misnotkun eða ranga notkun af einhverju tagi kemur upp, að einhliða mati Trúpí. Ef engin notkun hefur átt sér stað í 12 mánuði hefur Trúpí þann rétt að loka aðganginum þínum.

 

Öryggi á vefnum

Við leggjum okkur fram við að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinganna þegar keyptar eru vörur hjá Trúpí. Nánar í persónuverndarstefnu Trúpí.

 

Breytingar á skilmálum

Þú hefur aðgang að gildandi skilmálum á vef Trúpí. Trúpí áskilur sér rétt til að breyta ákvæðum skilmála einhliða. Komi til breytinga á skilmálum sem eru þér til óhagræðis munu þær verða kynntar með minnst 30 daga fyrirvara með skilaboðum í gegnum appið, SMS-tilkynningu eða tölvupósti á skráð netfang. Aðrar breytingar sem eru til hagræðis fyrir notanda, má tilkynna með skemmri fyrirvara. Þú samþykkir framangreindar aðferðir við upplýsingagjöf til þín. Í tilkynningu um breytta skilmála skal vakin athygli á því í hverju breytingar eru fólgnar og réttar þíns til að segja upp þjónustunni. Við lítum svo á að þú hafir samþykkt breytingar ef þú notar Trúpí eftir að nýir skilmálar hafa verið kynntir og teknir í gildi. Trúpí áskilur sér rétt til að hafa samskipti við þig og aðra notendur í gegnum SMS-skilaboð, með skilaboðum í gegnum appið eða tölvupósti á skráð netfang.

Gildistími

Skilmálar þessir eru gefnir út af Trúpí ehf. og gilda frá og með 23. ágúst 2021 og til þess tíma er nýir skilmálar taka gildi.